02.10.2008 22:38:37 / kolbrun88
Talandi um að sinna starfi sínu!
Hvað á þetta að þýða? Þegar ég var að keyra á æfingu dag var mér kennd lexía. Ég var stödd á aðrein að Suðurlandbraut, þegar ég tek eftir lögreglumanni sem er við skyldustörf á umferðareyju sem er mér á vinstri hönd. Veit ég ekki fyrr en að lögreglumaðurinn er komin upp að bílnum mínum., opnar hurðina og setur stefnuljósið á. Segir svo orðrétt við mig: “Notaðu stefnuljósin stelpa. Kanntu ekki umferðarreglurnar?”. Lokar lögreglumaðurinn bílhurðinni og gengur í burtu.